Stones gæti farið aftur til Everton - Salah tekur Tyrkland fram yfir Sádi-Arabíu - Vicario á förum frá Tottenham
   lau 11. apríl 2026 05:55
Brynjar Ingi Erluson
England í dag - Arsenal getur náð tólf stiga forystu á Man City
Arsenal á heimaleik gegn Bournemouth
Arsenal á heimaleik gegn Bournemouth
Mynd: EPA
Topplið Arsenal getur komið sér nær Englandsmeistaratitlinum í dag er það tekur á móti Bournemouth á Emirates-leikvanginum.

Arsenal er með níu stiga forystu og ekki tapað deildarleik síðan í lok janúar á meðan Bournemouth er í 13. sæti með 42 stig.

Bournemouth hefur verið á fínu róli og ekki tapað leik síðan í byrjun ársins. Á þessum tíma hefur liðið unnið Liverpool og gert jafntefli við lið á borð við Aston Villa og Manchester United.

Klukkan 14:00 mætast Brentford og Everton á samfélagsleikvanginum í Lundúnum og þá spilar Burnley við Everton á Turf Moor.

Englandsmeistarar Liverpool fá Fulham í heimsókn klukkan 16:30 á Anfield. Liverpool hefur ekki unnið deildarleik síðan gegn West Ham í lok febrúar.

Góðu fréttirnar fyrir Liverpool eru þær að England fær fimmta Meistaradeildarsætið í ár en Liverpool situr einmitt í því með 49 stig, einu stigi meira en Chelsea. Fulham er í 9. sæti með 44 stig sem sýnir hvað er stutt á milli liða í Meistaradeildarbaráttunni.

Leikir dagsins:
11:30 Arsenal - Bournemouth
14:00 Brentford - Everton
14:00 Burnley - Brighton
16:30 Liverpool - Fulham
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 34 22 7 5 64 26 +38 73
2 Man City 33 21 7 5 66 29 +37 70
3 Man Utd 34 17 10 7 60 46 +14 61
4 Liverpool 34 17 7 10 57 44 +13 58
5 Aston Villa 34 17 7 10 47 42 +5 58
6 Brighton 34 13 11 10 48 39 +9 50
7 Bournemouth 34 11 16 7 52 52 0 49
8 Chelsea 34 13 9 12 53 45 +8 48
9 Brentford 34 13 9 12 49 46 +3 48
10 Fulham 34 14 6 14 44 46 -2 48
11 Everton 34 13 8 13 41 41 0 47
12 Sunderland 34 12 10 12 36 45 -9 46
13 Crystal Palace 33 11 10 12 36 39 -3 43
14 Newcastle 34 12 6 16 46 50 -4 42
15 Leeds 34 9 13 12 44 51 -7 40
16 Nott. Forest 34 10 9 15 41 45 -4 39
17 West Ham 34 9 9 16 42 58 -16 36
18 Tottenham 34 8 10 16 43 53 -10 34
19 Burnley 34 4 8 22 34 68 -34 20
20 Wolves 34 3 8 23 24 62 -38 17
Slapp
banner
banner