Stones gæti farið aftur til Everton - Salah tekur Tyrkland fram yfir Sádi-Arabíu - Vicario á förum frá Tottenham
   lau 11. apríl 2026 13:28
Jóhann Þór Hólmgrímsson
England: Mikil spenna í titilbaráttunni eftir tap Arsenal
Mynd: EPA
Arsenal 1 - 2 Bournemouth
0-1 Eli Kroupi ('17 )
1-1 Viktor Gyokeres ('35 , víti)
1-2 Alex Scott ('74 )

Titilbaráttan í úrvalsdeildinni er orðin gríðarlega spennandi eftir að Arsenal tapaði gegn Bournemouth á Emirates í dag.

Upphafsmínúturnar voru ansi bragðdaufar en það dró til tíðinda eftir stundafjórðung. Það kom fyrirgjöf inn á teig Arsenal og boltinn fór af fætinum á William Saliba og til Eli Junior Kroupi á fjærstönginni sem skoraði og kom Bournemouth yfir.

Arsenal sótti í sig veðrið og fékk vítaspyrnu eftir rúmlega hálftíma leik þegar boltinn fór í höndina á Ryan Christie inn í teig Bournemouth. Viktor Gyökeres skoraði úr vítinu og jafnaði metin.

David Raya var mjög óöruggur í seinni hálfleik en hann átti mjög óvandaðar sendingar í tvígang en sem betur fer fyrir hann endaði það ekki illa.

Arsenal lenti hins vegar undir þegar Alex Scott komst einn í gegn og kláraði færið örugglega framhjá Raya.

Þegar skammt var til loka venjulegs leiktíma slapp miðvörðurinn Gabriel, af öllum mönnum, einn í gegn en Alex Jimenez gerði virkilega vel og náði að bjarga á síðustu stundu.

Arsenal er á toppnum með 70 stig, níu stigum á undan Man City sem á tvo leiki til góða en City fær Arsenal í heimsókn um næstu helgi. Bournemouth stökk upp úr 13. sæti upp í 9. sæti en liðið er með 45 stig.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 34 22 7 5 64 26 +38 73
2 Man City 33 21 7 5 66 29 +37 70
3 Man Utd 34 17 10 7 60 46 +14 61
4 Liverpool 34 17 7 10 57 44 +13 58
5 Aston Villa 34 17 7 10 47 42 +5 58
6 Brighton 34 13 11 10 48 39 +9 50
7 Bournemouth 34 11 16 7 52 52 0 49
8 Chelsea 34 13 9 12 53 45 +8 48
9 Brentford 34 13 9 12 49 46 +3 48
10 Fulham 34 14 6 14 44 46 -2 48
11 Everton 34 13 8 13 41 41 0 47
12 Sunderland 34 12 10 12 36 45 -9 46
13 Crystal Palace 33 11 10 12 36 39 -3 43
14 Newcastle 34 12 6 16 46 50 -4 42
15 Leeds 34 9 13 12 44 51 -7 40
16 Nott. Forest 34 10 9 15 41 45 -4 39
17 West Ham 34 9 9 16 42 58 -16 36
18 Tottenham 34 8 10 16 43 53 -10 34
19 Burnley 34 4 8 22 34 68 -34 20
20 Wolves 34 3 8 23 24 62 -38 17
Slapp
banner
banner
banner