Stones gæti farið aftur til Everton - Salah tekur Tyrkland fram yfir Sádi-Arabíu - Vicario á förum frá Tottenham
banner
   lau 11. apríl 2026 08:45
Brynjar Ingi Erluson
Real Madrid íhugar að ráða Deschamps
Didier Deschamps er á óskalista Real Madrid
Didier Deschamps er á óskalista Real Madrid
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Spænska stórveldið Real Madrid er farið að skoða þjálfaramarkaðinn fyrir sumarið en samkvæmt Fabrice Hawkins er Didier Deschamps, þjálfari franska landsliðsins, á óskalistanum.

Xabi Alonso var rekinn frá Real Madrid í byrjun árs og tók Alvaro Arbeloa við út tímabilið.

Undir stjórn Arbeloa hefur liðið tapað sex af nítján leikjum sínum á tímabilinu á meðan Alonso tapaði aðeins fimm leikjum.

Real Madrid ætlar að fá annan mann í stjórastólinn og segir Hawkins að Deschamps sé nafn sem hefur komið reglulega upp í umræðum stjórnarmanna.

Deschamps hættir með franska landsliðið eftir HM í sumar og mun Zinedine Zidane taka við stöðunni.

Áhugaverður kostur en Deschamps hefur þjálfað Frakka í fjórtán ár en þar áður var hann þjálfari Marseille, Juventus og Mónakó þar sem hann náði frábærum árangri.

Hann kom Mónakó í úrslit Meistaradeildarinnar árið 2004 og vann franska bikarinn. Deschamps hjálpaði sínu gamla félagi Juventus upp úr B-deildinni árið 2007 og þá vann hann deildina einu sinni og bikarinn þrisvar sinnum hjá Marseille.

Ekkert svo galin pæling hjá Madrídingum að sækja hann enda veit hann hvernig á að meðhöndla stórstjörnur. Fjórir Frakkar eru mála hjá Real Madrid sem hafa allir spilað undir Deschamps, en það eru þeir Kylian Mbappe, Aurelien Tchouameni, Ferland Mendy og Eduardo Camavinga.
Slapp
banner
banner
banner