Barcelona vill Van de Ven - Bruno bíður - Arsenal fær þau skilaboð að Esposito sé ekki til sölu
   fim 12. febrúar 2026 14:51
Elvar Geir Magnússon
Forest að ná samkomulagi við Pereira
Pereira er fyrrum stjóri Wolves.
Pereira er fyrrum stjóri Wolves.
Mynd: EPA
Nottingham Forest er nálægt því að ráða Vítor Pereira sem nýjan stjóra eftir að Sean Dyche var rekinn.

Pereira verður fjórði fastráðni stjóri Forest á tímabilinu en það er met í ensku úrvalsdeildinni.

Forest er þremur stigum frá fallsvæðinu þegar tólf umferðir eru eftir.

Í morgun var greint frá því að Forest hefði farið í viðræður við Pereira. Þær viðræður hafa gengið ljómandi vel og samkomulag að nást.

Pereira er 57 ára, fyrrum stjóri Wolves, og þekkir Evangelos Marinakis, eiganda Forest. Pereira stýrði gríska liðinu Olympiakos sem er einnig í eigu Marinakis.

Pereira hélt Úlfunum uppi í ensku úrvalsdeildinni eftir að hann var ráðinn um miðbik síðasta tímabils. Hann var hinsvegar látinn taka pokann sinn í nóvember en þá var liðið með tvö stig eftir tíu leiki.

Portúgalinn verður fjórði stjóri Forest á tímabilinu; á eftir Nuno Espirito Santo, Ange Postecoglou og Dyche.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 29 19 7 3 58 22 +36 64
2 Man City 28 18 5 5 57 25 +32 59
3 Man Utd 28 14 9 5 50 38 +12 51
4 Aston Villa 28 15 6 7 38 30 +8 51
5 Liverpool 29 14 6 9 48 39 +9 48
6 Chelsea 28 12 9 7 49 33 +16 45
7 Brentford 29 13 5 11 44 40 +4 44
8 Everton 29 12 7 10 34 33 +1 43
9 Bournemouth 29 9 13 7 44 46 -2 40
10 Fulham 28 12 4 12 40 42 -2 40
11 Sunderland 29 10 10 9 30 34 -4 40
12 Brighton 28 9 10 9 38 35 +3 37
13 Newcastle 28 10 6 12 40 42 -2 36
14 Crystal Palace 28 9 8 11 30 34 -4 35
15 Leeds 29 7 10 12 37 48 -11 31
16 Tottenham 28 7 8 13 38 43 -5 29
17 Nott. Forest 28 7 6 15 26 41 -15 27
18 West Ham 28 6 7 15 34 54 -20 25
19 Burnley 29 4 7 18 32 58 -26 19
20 Wolves 30 3 7 20 22 52 -30 16
Athugasemdir
banner
banner