Trent Alexander-Arnold lék nánast allan leikinn í 3-0 sigri Real Madrid gegn Manchester City í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í gærkvöldi.
Trent er að stimpla sig vel inn í byrjunarliðið hjá Madrídingum og heldur Dani Carvajal fyrirliða á bekknum.
Hann átti í smá basli með Jérémy Doku í byrjun leiks í gær en eftir fyrsta mark heimamanna lenti Trent sjaldan í vandræðum.
„Fólk bjóst við að okkur yrði slátrað í kvöld en þetta sýnir bara hugarfarið sem við erum með. Við fylgdum leikplaninu eftir og áttum frábæran leik. Þegar maður er kominn á þetta svið í útsláttarkeppni þá getur hvaða lið sem er unnið gegn hvaða liði sem er," sagði Trent við TNT Sports eftir lokaflautið.
„Þetta var risa frammistaða frá okkur á erfiðum kafla á tímabilinu. Við erum að glíma við mikil meiðslavandræði en við stigum upp og skiptum um gír. Ég verð að segja að áhorfendurnir hjálpuðu mjög mikið með sínum stuðningi."
Real var búið að tapa tveimur af síðustu fjórum leikjum sínum fyrir þennan og er að dragast afturúr í titilbaráttu La Liga, fjórum stigum á eftir ríkjandi meisturum Barcelona. Tapleikirnir óvæntu voru gegn Getafe og Osasuna.
„Ég held að aðalmunurinn sé stærð leikjanna. Ég vil ekki segja að hinir leikirnir séu ekki jafn mikilvægir, en þegar það er svona mikil spenna og eftirvænting fyrir einn leik og augu heimsins eru á honum, þá veistu að þú verður að standa þig."
Federico Valverde var hetja Madrídinga í gærkvöldi þar sem hann skoraði öll þrjú mörk leiksins í fyrri hálfleik.
„Ég á ekki til orð til að lýsa honum sem leikmanni. Hann er án nokkurs vafa vanmetnasti fótboltamaður plánetunnar. Þegar þú spilar með honum þá skilurðu hversu mikið hann gefur liðinu. Hann er allsstaðar á vellinum og leggur allt í sölurnar í hverjum einasta leik, hann er rosalega áreiðanlegur leikmaður. Við getum alltaf treyst á Fede útaf því að hann mun aldrei bregðast okkur."
Trent segist átta sig á því að það er bara hálfleikur í einvíginu, seinni leikurinn í Manchester er ennþá eftir.
„3-0 eru stórkostleg úrslit gegn svona sterkum andstæðingum, við sýndum þeim engan miskunn og nýttum færin okkar. Við vitum að það er bara hálfleikur í einvíginu, við getum ekki byrjað að fagna í hálfleik. Við höfum séð klikkaða leiki á milli þessara liða í fortíðinni þannig það er ekki hægt að útiloka neitt. Við ætlum að reyna að vinna leikinn á Etihad."
Athugasemdir

