Pep Guardiola var svekktur eftir 3-0 tap Manchester City gegn Real Madrid er liðin mættust í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar á Santiago Bernabéu í gærkvöldi.
Federico Valverde var hetja Madrídinga og vann leikinn fyrir heimamenn með þrennu í fyrri hálfleik. Vinícius Júnior fékk tækifæri til að setja fjórða markið í síðari hálfleiknum en Gianluigi Donnarumma varði vítaspyrnutilraun hans. Undir lok leiksins var Nico O'Reilly svo nálægt því að minnka muninn en Thibaut Courtois varði meistaralega frá honum.
„Real Madrid hafði gæðin til að skora þessi þrjú mörk, þannig er það. Mér fannst við spila betur heldur en úrslitin segja til um, en það breytir ekki úrslitunum. Núna höfum við eina viku áður en við mætum þeim á Etihad, við spilum mjög erfiðan og mikilvægan leik við West Ham inn á milli," sagði Guardiola.
„Við eigum kannski ekki mikla möguleika en við munum reyna að snúa þessu við, það er aldrei að vita hvað gerist í fótbolta. Við þurfum fyrst að reyna að jafna okkur líkamlega og andlega og spila við West Ham.
„Þetta eru slæm úrslit. Í fyrsta markinu þá vörðumst við illa en eftir það réðu gæðin í Valverde og leikmönnunum í kringum hann úrslitum. Það er ekki auðvelt að kyngja þessu en auðvitað er betra að tapa 3-0 heldur en 4-0.
„Við verðum að skoða þennan leik ítarlega og finna út hvað við getum gert betur."
Athugasemdir



