Það vakti athygli að íslenska kvennalandsliðið spilaði ekki landsleiki í opinberum landsleikjaglugga í lok nóvember og byrjun desember. Ástæðan fyrir því er skortur á fjármagni, ekki var til fjármagn til að spila vináttuleiki.
Þorsteinn Halldórsson, þjálfari landsliðsins, kynnti í dag hópinn fyrir komandi leiki í undankeppni HM. Framundan eru leikir gegn heimsmeisturum Spánar og Evrópumeisturum Englands.
Þorsteinn var á fréttamannafundi í dag spurður út í þá staðreynd að liðið hans spilaði ekki í síðasta glugga.
Þorsteinn Halldórsson, þjálfari landsliðsins, kynnti í dag hópinn fyrir komandi leiki í undankeppni HM. Framundan eru leikir gegn heimsmeisturum Spánar og Evrópumeisturum Englands.
Þorsteinn var á fréttamannafundi í dag spurður út í þá staðreynd að liðið hans spilaði ekki í síðasta glugga.
Nú var ekkert landsliðsverkefni í síðasta glugga hjá Íslandi. Er það ekkert svekkjandi gefið einmitt hverjir andstæðingarnir eru í þessum glugga?
„Jú, jú, auðvitað hefðum við sjálfsögðu viljað spila leiki og allt það. Og þetta er bara ákvörðun sem er tekin og er ekki tekin af mér. Þannig að ég er ekki réttur maður til að svara því nákvæmlega. En auðvitað viljum við alltaf spila leiki og auðvitað er alltaf markmið okkar að taka þátt í öllum verkefnum sem hægt er. En þetta er ákvörðun sem er tekin fyrir ofan mig og ég hef svo sem ekkert annað um það að segja. Ég hef svarað þessu nokkuð oft held ég.“
Þú segist vera búinn að svara þessu nokkuð oft. Kannski biðja þig um að svara þessu einu sinni enn. Hverjar voru ástæðurnar fyrir því að ekki voru spilaðir leikir í þessum glugga? Hverjar voru ástæðurnar sem þér voru gefnar?
„Það eru aðrir aðilar sem svara fyrir það heldur en ég."
Já, en hvaða ástæður voru þér gefnar?
„Skiptir engu máli. Það eru bara aðrir aðilar sem svara fyrir þetta. Er eitthvað flókið við það að aðrir aðilar svari fyrir það?“
Ég veit bara ekki hvaða aðila ég á að spyrja. Við erum bara...
„Þeir sem ráða fyrir ofan mig. Ég ákveð ekki hvaða verkefni eru tekin."
Nei, ég er ekki að spyrja að því, ég er að spyrja hvaða ástæður þér voru gefnar fyrir þessari ákvörðun sem var tekin?
„Það var bara af peningalegum ástæðum sem ákveðið var að ekki ætti að fara í þetta verkefni. Annað get ég ekki svarað til um," sagði Steini. Hægt er að sjá hvað fór fram á fundinum hér að neðan.
Athugasemdir




