Patrick sló markametið í efstu deild á síðasta tímabili, varð markakóngur og var valinn besti leikmaður deildarinnar af leikmönnum.
Patrick Pedersen er markahæsti leikmaður í sögu efstu deildar. Hann kom fyrst til Íslands árið 2013 og hefur tvisvar verið seldur frá félaginu - en komið til baka í bæði skiptin. Hann sleit hásin í úrslitaleik Mjólkurbikarsins í fyrra. Þá var lið Vals á toppi Bestu deildarinnar en missti Víkinga fram úr sér á lokakaflanum. Patrick var þá kominn með nítján mörk og endaði sem markahæsti leikmaður deildarinnar.
Yngri bróðir Patricks, Jeppe Pedersen, sem skrifaði undir hjá KA í síðasta mánuði, ræddi við Fótbolta.net. Hann var spurður hvort að vera Patricks á Íslandi hafi tengst komu sinni til Íslands sumarið 2024.
Yngri bróðir Patricks, Jeppe Pedersen, sem skrifaði undir hjá KA í síðasta mánuði, ræddi við Fótbolta.net. Hann var spurður hvort að vera Patricks á Íslandi hafi tengst komu sinni til Íslands sumarið 2024.
„Það er ekkert leyndarmál að þegar ég sá hversu vel var að ganga hjá bróður mínum hér á Íslandi þá átti það þátt því að ég kom líka hingað. Ég horfði á marga leiki hjá honum áður en ég kom hingað og sá honum ganga vel. Auðvitað átti það þátt í því að ég kom hingað til Íslands," segir Jeppe.
„Það hefur verið ótrúlegt að fylgjast með ferlinum hans, það voru örugglega ekki margir sem trúðu því að hann myndi eiga þann feril sem hann hefur átt. En það er allt kredit á hann, ég er mjög stoltur af honum fyrir hvað hann hefur afrekað til þessa."
Hefur þú einhvern tímann verið nálægt því að spila með honum eftir að þið urðuð atvinnumenn?
„Það hefur verið smá draumur hjá okkur að spila saman, ég veit að hann á nokkur góð ár eftir þegar hann snýr til baka, svo það er ekki alveg farið," segir Jeppe léttur.
Jeppe var orðaður við Val í vetur og Patrick sagði við Fótbolta.net síðasta vor að hann hafi reynt að planta fræinu um að fá Jeppe til Vals áður en hann fór í Vestra.
„Ég heyrði af Valsorðrómnum, en það voru engin bein samskipti milli mín og félagsins."
Hvernig var að sjá Patrick meiðast í úrslitaleiknum?
„Að sjá hann meiðast í úrslitaleiknum var erfitt. Það er aldrei gaman að sjá einhvern meiðast svona illa og þegar það er bróðir þinn þá hefur það meiri áhrif á þig. Ég var í sjokki mínúturnar á eftir, en ég þurfti að klára það sem við ætluðum okkur í þessum úrslitaleik. Þetta var mjög tilfinningaþrungið - fór úr frábærri tilfinningu og í slæma við það að sjá hann meiðast. Það var erfitt, en ég veit að hann kemur enn sterkari til baka."
„Stuðningsmenn Vals, og allir fótboltaaðdáendur, ættu að vera spenntir að sjá hann koma aftur á völlinn," segir Jeppe.
Patrick sagði við Fótbolta.net fyrr í vetur að hann stefnir á endurkomu á völlinn seint í maí.
Athugasemdir

