Man Utd íhugar að reyna við Mac Allister hjá Liverpool - Arsenal hefur áfram áhuga á Williams - Napoli vill ekki missa McTominay
   þri 17. febrúar 2026 09:23
Elvar Geir Magnússon
Hneykslaður á vinnubrögðum KSÍ - „Virðingarleysi fyrir upplýsingagjöf“
Óskar Ófeigur Jónsson er einn helsti tölfræðisérfræðingur í íslenskum íþróttum.
Óskar Ófeigur Jónsson er einn helsti tölfræðisérfræðingur í íslenskum íþróttum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Óhætt er að segja að óánægja sé með nýja heimasíðu Knattspyrnusambands Íslands. Síðan er meingölluð og það sem verra er gefur hún ekki upp réttar tölur eins og yfir landsleiki og mörk svo eitthvað sé nefnt;" skrifar íþróttafréttamaðurinn Óskar Ófeigur Jónsson í pistli á Vísi.

Óskar bætist í hóp þeirra sem hafa opinberlega gagnrýnt nýja heimasíðu KSÍ. Í pistlinum fer hann yfir ýmsa misbresti á síðunni og furðar sig á því að gamli vefurinn sé ekki enn í loftinu.

„Sú staðreynd að gamli KSÍ-vefurinn sé horfinn af netinu er klárt dæmi um virðingarleysi sambandsins fyrir upplýsingagjöf og tölfræði íslenska fótboltans. Ég hef lengi unnið að tölfræði í fótbolta og hef notað KSÍ-vefinn mikið til að lóðsa mig um mót og fyrri úrslit. Ég er hreinlega hneykslaður á þessum vinnubrögðum langstærsta sérsambands Íslands."

Sér ekki slíkt kraftaverk verða að veruleika
Eysteinn Pétur Lárusson, framkvæmdastjóri KSÍ, hefur kallað eftir þolinmæði og sagt að vefurinn verði á endanum í lagi. Óskar Ófeigur efast hreinlega um að það verði raunin.

„Hann er bjartsýnn á það en ég get ekki tekið undir slíka Pollýönnu-hugsun. Gallarnir í dag eru bara of margir og of sláandi," segir Óskar.

„Ég sjálfur sé bara ekki slíkt kraftaverk verða að veruleika og verð líklega að sætta mig við það að upplýsingar um íslenskan fótbolta verði hér eftir fátæklegri, ruglingslegri og vitlausari en áður."
Athugasemdir
banner
banner