PSG á eftir Haaland - Gordon orðaður við tvo risa - Trafford tekur Villa fram yfir Newcastle - Hvert fer Bernardo?
   fös 20. febrúar 2026 21:36
Ívan Guðjón Baldursson
Þýskaland: Lánsmaður frá Arsenal bjargaði stigi
Mynd: Porto
Mainz 1 - 1 Hamburger SV
1-0 Nadiem Amiri ('42)
1-1 Fabio Vieira ('64)

Mainz tók á móti nýliðum Hamburger SV í fyrsta leik helgarinnar í þýska boltanum og náði Nadiem Amiri, fyrrum leikmaður Bayer Leverkusen, forystunni fyrir heimamenn á 42. mínútu með flottu skoti eftir fyrirgjöf.

Leikurinn var jafn og tíðindalítill bæði fyrir og eftir leikhlé en Fabio Vieira, sem leikur hjá HSV á láni frá Arsenal, gerði jöfnunarmark á 64. mínútu með marki úr aukaspyrnu þar sem boltinn breytti um stefnu af varnarveggnum.

Meira var ekki skorað og tókst Vieira því að bjarga stigi fyrir sína menn, sem eru að eiga flott tímabil eftir endurkomu í efstu deild.

HSV er um miðja deild með 26 stig eftir 22 umferðir, sjö stigum fyrir ofan fallsvæðið. Mainz er með 22 stig.
Athugasemdir
banner
banner