Fjórum leikjum er lokið í fyrri viðureignum í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar.
Hákon Arnar Haraldsson var í byrjunarliði Lille sem fékk Aston Villa í heimsókn. Leikurinn var nokkuð tíðinda lítill en Lille var betri aðilinn í fyrri hálfleik.
Hákon Arnar Haraldsson var í byrjunarliði Lille sem fékk Aston Villa í heimsókn. Leikurinn var nokkuð tíðinda lítill en Lille var betri aðilinn í fyrri hálfleik.
Aston Villa braut hins vegar ísinn eftir klukkutíma leik þegar Ezri Konsa átti langa sendingu fram völlinn. Emi Buendia skallaði boltann til Ollie Watkins sem skallaði snyrtilega yfir Berke Özer í marki Lille og í netið.
Þetta var kærkomið mark fyrir Watkins sem hafði ekki skorað í sex leikjum í röð.
Sverrir Ingi Ingason var í byrjunarliði Panathinaikos sem fékk Betis í heimsókn. Betis var með yfirhöndina í leiknum og Panathinaikos missti mann af velli með rautt spjald eftir hálftíma leik.
Það var hins vegar jafnt í liðum undir lok leiksins þegar Diego Llorente fékk rautt spjald og vítaspyrna dæmd. Vicente Taborda skoraði úr vítinu og tryggði Panathinaikos sterkan sigur.
Federico Bernardeschi kom Bologna yfir eftir frábæran undirbúning Jonathan Rowe í Ítalíuslag gegn Roma. Lorenzo Pellegrini jafnaði metin fyrir Roma og staðan er jöfn í einvíginu fyrir seinni leikinn í Róm.
Porto er yfir gegn Stuttgart eftir sigur á útivelli í kvöld.
Panathinaikos 1 - 0 Betis
1-0 Vicente Taborda ('87 , víti)
Rautt spjald: ,Anass Zaroury, Panathinaikos ('59)Diego Llorente, Betis ('88)
Stuttgart 1 - 2 Porto
0-1 Terem Moffi ('21 )
0-2 Rodrigo Mora ('27 )
1-2 Deniz Undav ('40 )
Bologna 1 - 1 Roma
1-0 Federico Bernardeschi ('50 )
1-1 Lorenzo Pellegrini ('71 )
Lille 0 - 1 Aston Villa
0-1 Ollie Watkins ('61 )
Athugasemdir


