Arsenal orðað við þrjá - Zirkzee vill fara frá Man Utd sem vill fá Murillo - Kinsky fer á láni
   fös 13. mars 2026 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Lengjubikar kvenna: Afturelding og Augnablik unnu
Kvenaboltinn
Adna Mesetovic
Adna Mesetovic
Mynd: Afturelding
Tveir leikir fóru fram í riðli 2 í C deild Lengjubikars kvenna í gær.

Afturelding hefur unnið fyrstu tvo leiki sína en liðið vann öruggan sigur á ÍR í gær.

Augnablik nældi í sinn fyrsta sigur en Vala Ingvarsdóttir skoraði eina mark leiksins snemma í sigri á Álftanesi.

Afturelding er á toppnum með sex stig, Augnablik í 2. sæti með fjögur, ÍR í 3. sæti með þrjú stig og Álftanes er í 5. sæti án stiga eftir þrjár umferðir.

Afturelding 4 - 0 ÍR
1-0 Adna Mesetovic ('34 )
2-0 Karen Dæja Guðbjartsdóttir ('45 )
3-0 Tinna Guðjónsdóttir ('69 )
4-0 Ingibjörg Guðný Guðmundsdóttir ('78 )

Álftanes 0 - 1 Augnablik
0-1 Vala Ingvarsdóttir ('5 )
Athugasemdir
banner
banner