Arne Slot, stjóri Liverpool, segir að það sé of snemmt að fella stóra dóma í tengslum við ömurlega viku ensku liðanna í fyrri leikjum 16-liða úrslita Meistaradeildarinnar.
Ekkert af liðunum sex náði að vinna fyrri leikinn en Liverpool tapaði 1-0 gegn Galatasaray í Istanbúl.
Ekkert af liðunum sex náði að vinna fyrri leikinn en Liverpool tapaði 1-0 gegn Galatasaray í Istanbúl.
„Að fella dóm eftir eina leikviku, það er ekki klókt að gera það. Staðan gæti verið allt önnur eftir viku," segir Slot.
„Almennt séð hjálpar það ekki enskum liðum að hafa ekki vetrarhlé. Ég er ekki að segja að öll þessi lið hafi tapað vegna þess að það sé ekki vetrarhlé."
„Fimm af liðunum spiluðu á útivöllum og það spilar líka inn í. Maður á ekki að dæma lið eftir einum leik."
Athugasemdir

