Sigurbergur Áki Jörundsson, leikmaður Fylkis, fór meiddur af velli í leik Fylkis gegn ÍBV í Lengjubikarnum í gær. Leikurinn í gær var hans sjöundi keppnisleikur í vetur eftir að hafa snúið til baka úr erfiðum meiðslum.
Sigurbergur Áki missti af öllu tímabilinu í fyrra eftir að hafa slitið krossband undir lok tímabilsins 2024. Það var í annað sinn á hans ferli sem hann sleit krossband.
Hann mun hitta lækni í dag vegna meiðslanna, en óttast er að hann hafi meiðst alvarlega.

Sigurbergur Áki er fæddur árið 2004 og á að baki 16 leiki fyrir yngri landsliðin. Hann gekk í raðir Fylkis frá uppeldisfélaginu Stjörnunni í byrjun tímabils 2024.
Athugasemdir