Íslenskur toppfótbolti (hagsmunasamtök liða í tveimur efstu deildum í knattspyrnu á Íslandi) hefur ráðið Ólaf H. Kristjánsson í starf upplifunar- og gæðastjóra deildarinnar, en um er að ræða nýtt hlutverk sem styður vaxandi áherslu deildarinnar á heildræna upplifun af vörumerkinu Besta deildin. Meginmarkmið ráðningarinnar er að fjölga áhorfendum á völlinn og stækka vörumerkið í öllum skilningi þess orðs.
Ólafur er nafn sem kannski einhverjir kannast við, en hann hefur að mestu leyti starfað erlendis undanfarin ár. Þar hefur hann komið að stórum verkefnum innan hagkerfis knattspyrnunnar og mikils er vænst af störfum Ólafs á komandi tímabili.
„Við erum gríðarlega ánægð að fá Ólaf H. til liðs við Bestu deildina. Okkur hefur lengi langað að setja meiri áherslu á þennan málaflokk og með komu Ólafs stígum við stórt skref í þá átt að þróa enn frekar vöruna sem Besta deildin er," segir Birgir Jóhannsson framkvæmdarstjóri ÍTF.
Það eru einungis 28 dagar í að flautað verði til leiks í deildinni og það verður áhugavert að sjá hvort að ummerki Ólafs H. verði sjánleg í fyrsta leik þegar Víkingar taka á móti Breiðabliki 10. apríl.
Athugasemdir



