Barcelona langar í Haaland - Tonali og Fernandes á blaði Man Utd - Klopp gæti tekið við Þýskalandi
banner
   fös 13. mars 2026 11:17
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Svona verða undanúrslitin í Lengjubikarnum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stjarnan, KR og Þór verða í Bestu deildinni í sumar en Fylkismenn, sem komust í úrslit í fyrra, verða í Lengjudeildinni í sumar.
Stjarnan, KR og Þór verða í Bestu deildinni í sumar en Fylkismenn, sem komust í úrslit í fyrra, verða í Lengjudeildinni í sumar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ljóst er hvaða lið mætast í undanúrslitum A-deildar Lengjubikarsins. Ljóst var að Stjarnan og KR myndu mætast og Fótbolti.net greindi frá því í gær að Þór myndi mæta Fylki í hinni undanúrslitaviðureigninni. KSÍ hefur nú staðfest það.

Stjarnan og KR mætast á Samsungvellinum í hádeginu á morgun (12:00) og á þriðjudag (17:00) tekur Þór á móti Fylki á Þórsvellinum.

Þróttur ætti tölfræðilegan möguleika á því að ná Fylki á toppi riðils 4 í Lengjubikarnum en ekki verður látið reyna á það þar sem Þróttur er á leið í æfingaferð og í kjölfarið tekur Mjólkurbikarinn við.

Úrslitaleikur Lengjubikarsins fer fram um aðra helgi.

Úr frétt á heimasíðu KSÍ
Öllum leikjum er ekki lokið í riðli 4 og er Þróttur R. eina félagið sem getur náð Fylki að stigum í mótinu. Þróttur R. á eftir frestaðan leik gegn ÍBV.

Vegna æfingaferðar Þróttar R. og leikja í Mjólkurbikarnum í framhaldinu verður ekki látið reyna á það hvort Þróttur R. nái Fylki að stigum og vinni upp markamismun liðanna.

Úr reglugerð mótsins

2.4 Sé jafnt eftir venjulegan leiktíma í úrslitakeppnum mótsins, skal fara fram vítaspyrnukeppni til að úrskurða um sigurvegara.
Athugasemdir
banner
banner