Arsenal orðað við þrjá - Zirkzee vill fara frá Man Utd sem vill fá Murillo - Kinsky fer á láni
   fös 13. mars 2026 07:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Spilaði í óvenjulegri stöðu - „Forréttindi að spila fyrir þetta félag"
Mynd: EPA
Crystal Palace gerði markalaust jafntefli gegn kýpverska liðinu AEK Larnaca í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Sambandsdeildarinnar á heimavelli í gær.

Það vakti athygli að sóknarmaðurinn Brennan Johnson spilaði hægri bakvörð í fjarveru Daniel Munoz en Nathaniel Clyne var meðal varamanna.

„Ég er ánægður þegar stjórinn þarf á mér að halda, það eru forréttindi að spila fyrir þetta félag," sagði Johnson.

„Heilt yfir er þetta svekkjandi, við fengum tækifæri. Staðan er 0-0, við getum ekki svekkt okkur of mikið því það er annar stór leikur í næstu viku. Við erum í sömu stöðu og fyrir leikinn, allt opið ennþá, við vitum hvað við getum og erum bjartsýnir."
Athugasemdir
banner
banner