Valur hefur verið sektaður um 100 þúsund krónur af KSÍ. Skýrsla liðsins gegn ÍA í Lengjubikarnum var ranglega fyllt út og er það brot á lögum sambandsins og var hún tekin fyrir á fundi aga- og úrskurðarnefndar KSÍ.
Á leikskýrslu var markvörðurinn Stefán Þór Ágústsson skráður í byrjunarliðið en það var í raun Ögmundur Kristinsson sem byrjaði leikinn. Þeir skiptu svo í hálfleik.
Skipting var gerð í hálfleik þar sem markmaður nr. 25 kom inn á fyrir markmann nr. 1 en dómari lenti í vandræðum með að staðfesta leikskýrslu þar sem ekki var hægt að skrá þessa skiptingu.
Valur skilaði greinargerð í málinu þar sem vísað er til þess að mistök hafi verið gerð sem uppgötvuðust rétt fyrir leik en þá hafi verið of seint að breyta liðsskipan. Engin ásetningur hafi búið að baki, segir m.a. í úrskurðinum.
Ef það hefði verið mat nefndarinnar að Valur hefði viljandi skráð rangan markvörð í markið þá hefði Val verið dæmt 0-3 tap í leiknum og félagið verið sektað um allt að 250 þúsund krónur. ÍA vann leikinn 2-1.
Hér má nálgast leikskýrsluna

Úrskurðurinn
Úrskurður aga- og úrskurðarnefndar KSÍ v. skýrslu dómara úr leik ÍA gegn Val 26. febrúar 2026
Á fundi aga- og úrskurðarnefndar KSÍ, þann 10. mars 2026, var tekið fyrir mál Vals sem er tilkomið vegna skýrslu dómara frá ofangreindum leik. Í samræmi við reglugerð KSÍ um aga- og úrskurðarmál úrskurðar nefndin m.a. um þau atriði sem koma fram í skýrslu dómara. Í málinu er kveðinn upp svohljóðandi úrskurður:
Samkvæmt skýrslu dómara var leikskýrsla Vals á þann veg að markmaður í byrjunarliði var tilgreindur nr. 25, Stefán Þór Ágústsson, og varamarkvörður nr. 1, Ögmundur Kristinsson. Þegar leikmenn gengu til vallar er leikmaður nr. 1 í markinu og Valur vill ekki breyta liðskipan þó staðfest leikskýrsla beri annað með sér. Skipting var gerð í hálfleik þar sem markmaður nr. 25 kom inn á fyrir markmann nr. 1 en dómari lenti í vandræðum með að staðfesta leikskýrslu þar sem ekki var hægt að skrá þessa skiptingu. Valur skilaði greinargerð í málinu þar sem vísað er til þess að mistök hafi verið gerð sem uppgötvuðust rétt fyrir leik en þá hafi verið of seint að breyta liðsskipan. Engin ásetningur hafi búið að baki.
Niðurstaða:
Samkvæmt gr. 36.3 reglugerðar KSÍ um knattspyrnumót segir:
„Ef leikskýrsla er vísvitandi ranglega fyllt út, t.d. með því að falsa nafn eða kennitölu þátttakanda, skal liðið sem í hlut á tapa leiknum með markatölunni 0-3 nema tap hafi verið stærra, þá skal sú markatala ráða. Félag sem fyllir ranglega út leikskýrslu í meistaraflokki getur sætt sekt að lágmarki upphæð kr. 100.000 og allt að kr. 250.000.
Félag sem fyllir ranglega út leikskýrslu í öðrum aldursflokkum en í meistaraflokki getur sætt sekt að lágmarki upphæð kr. 50.000 og allt að kr. 100.000. Sé um vísvitandi brot að ræða skal sektin vera allt að kr. 150.000 í meistaraflokki en 100.000 í öðrum flokkum."
Aga- og úrskurðarnefnd telur með vísan til alls framangreinds og gagna málsins ljóst að leikskýrsla Vals í umræddum leik hafi verið ranglega útfyllt. Ekki er talið að svo hafi verið af ásettu ráði en nefndin telur þá háttsemi að fylla skýrslu út með röngum hætti fela í sér brot gegn framangreindu ákvæði. Samkvæmt orðum ákvæðisins er lágmarkssekt kr. 100.000,-.
Úrskurðarorð:
Knattspyrnudeild Vals skal sæta sekt að fjárhæð kr. 100.000,- til KSÍ.
Reykjavík 11. mars 2026
aga- og úrskurðarnefnd KSÍ
Athugasemdir