Hin 28 ára gamla Delaney Baie Pridham er búin að spila sína fyrstu landsleiki fyrir A-landslið Kanada.
Hún kom inn af bekknum í 1-0 tapi gegn Bandaríkjunum og var svo í byrjunarliðinu í markalausu jafntefli gegn Argentínu, sem endaði með sigri Kanada í vítaspyrnukeppni.
Delaney lék í íslenska boltanum sumarið 2021 og skoraði 8 mörk í 12 leikjum með ÍBV. Hún er framherji og hélt til Kristianstad eftir dvöl sína í Vestmannaeyjum.
Hún skipti svo yfir til Linköping áður en hún skipti yfir í kanadísku deildina, þar sem hún er í algjöru lykilhlutverki hjá Ottawa Rapid.
„Það sem var eitt sinn draumur í barnæsku er nú orðið að veruleika. Ég er stolt og heiðruð af því að hafa spilað fyrir landsliðið," skrifar Delaney á Instagram.
Athugasemdir


