Liverpool og Man Utd vilja Raum - Chelsea og Arsenal eltast við Hall - Verbruggen lítur í kringum sig
   fös 13. mars 2026 14:13
Elvar Geir Magnússon
Rosenior: Treysti þeim báðum
Filip Jörgensen í leiknum gegn PSG.
Filip Jörgensen í leiknum gegn PSG.
Mynd: EPA
Liam Rosenior.
Liam Rosenior.
Mynd: EPA
Liam Rosenior stjóri Chelsea hefur farið þá umdeildu leið að vera ekki með fastan aðalmarkvörð. Robert Sanchez og Filip Jörgensen hafa skipst á leikjum að undanförnu.

„Ég lít á markvarðarstöðuna kannski öðruvísi. Ég horfi á hvern leik fyrir sig. Venjan er að það sé valinn aðalmarkvörður en ég reyni að velja besta mögulega liðið fyrir hvern leik," sagði Rosenior fyrir viku síðan.

Á fréttamannafundi í dag var hann síðan spurður aftur út í markvarðabaráttuna.

„Ég ákvað að láta Filip spila gegn Aston Villa og hann var framúrskarandi. Hann var svo frábær í 75 mínútur gegn Paris St-Germain. Hann gerði ein mistök, okkur var refsað og við töpuðum leiknum stærra en við hefðum átt að gera," segir Rosenior en PSG vann fyrri leikinn gegn Chelsea í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar 5-2.

„Robert Sanchez er einn besti markvörður deildarinnar. Það er enginn vafi um gæði þessara tveggja leikmanna á þessu stigi. Þetta snýst bara um ákvörðun fyrir hvern leik."

Er Jörgensen andlega tilbúinn að byrja gegn Newcastle í ensku úrvalsdeildinni á morgun?

„Klárlega. Allir gera mistök. Þetta snýst bara um hvernig þú bregst við þeim. Ég treysti þeim báðum fullkomlega eins og öllu liðinu."

Varðandi seinni leikinn gegn PSG segir Rosenior að sitt lið geti komið til baka og slegið Evrópumeistarana út.

„Ég hef oft séð lið koma til baka þremur mörkum undir í Meistaradeildinni. Við eigum enn mjög góða möguleika ef við náum að skora fyrsta markið í fyrri hálfleik á föstudaginn," segir Rosenior.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 32 21 7 4 62 24 +38 70
2 Man City 31 19 7 5 63 28 +35 64
3 Man Utd 32 15 10 7 57 45 +12 55
4 Aston Villa 32 16 7 9 43 38 +5 55
5 Liverpool 32 15 7 10 52 42 +10 52
6 Chelsea 32 13 9 10 53 41 +12 48
7 Brentford 32 13 8 11 48 44 +4 47
8 Everton 32 13 8 11 39 37 +2 47
9 Brighton 32 12 10 10 43 37 +6 46
10 Sunderland 32 12 10 10 33 36 -3 46
11 Bournemouth 32 10 15 7 48 49 -1 45
12 Fulham 32 13 5 14 43 46 -3 44
13 Crystal Palace 31 11 9 11 35 36 -1 42
14 Newcastle 32 12 6 14 45 47 -2 42
15 Leeds 32 8 12 12 39 49 -10 36
16 Nott. Forest 32 8 9 15 32 44 -12 33
17 West Ham 32 8 8 16 40 57 -17 32
18 Tottenham 32 7 9 16 40 51 -11 30
19 Burnley 32 4 8 20 33 63 -30 20
20 Wolves 32 3 8 21 24 58 -34 17
Slapp
banner
banner
banner