Arsenal orðað við þrjá - Zirkzee vill fara frá Man Utd sem vill fá Murillo - Kinsky fer á láni
banner
   fim 12. mars 2026 20:01
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Cecilía maður leiksins í undanúrslitum
Kvenaboltinn
Mynd: EPA
Cecilía Rán Rúnarsdóttir átti frábæran leik þegar Inter heimsótti Roma í fyrri leik liðanna í undanúrslitum ítalska bikarsins í kvöld. Hún var m.a. valin maður leiksins á Flashscore.

Hún byrjaði leikinn frábærlega og varði oft á tíðum virkilega vel en hún var sigruð snemma í seinni hálfleik. Inter náði að jafna metin úr vítaspyrnu undir lok leiksins og staðan er því jöfn fyrir seinni leikinn í Mílanó.

Karólína Lea Vilhjálmsdóttir kom inn á í hálfleik og Telma Ívarsdóttir var varamarkvörður.

Guðrún Arnardóttir kom inn á undir lokin þegar Hammarby gerði 2-2 jafntefli gegn Vaxjö í 2. umferð sænska bikarsins. Hammarby er með fjögur stig. Liðið mætir Viittsjö í lokaumferðinni og getur tryggt sætið sitt í næstu umferð með jákvæðum úrslitum,
Athugasemdir
banner