Breiðablik hefur verið í framherjaleit í vetur en útlit er fyrir að þeirri leit sé lokið.
Það kom fram hér á Fótbolta.net í dag að norski fjölmiðillinn Sunnmörsposten orðaði Sebastian Heimvik Haugland við Breiðablik.
Það kom fram hér á Fótbolta.net í dag að norski fjölmiðillinn Sunnmörsposten orðaði Sebastian Heimvik Haugland við Breiðablik.
Haugland er leikmaður Hödd í B-deildinni í Noregi og er samningsbundinn félaginu út árið en samkvæmt heimildum Fótbolta.net hefur norska félagið samþykkt tilboð frá Breiðabliki.
Hann er 29 ára gamall en hann hefur skorað 58 mörk í 89 leikjum á sínum ferli samkvæmt Transfermarkt sem ekki er með gögn um hans tölfræði í neðri deildum Noregs fyrir tímabilið 2023. Hann hefur skorað 17 mörk í 43 leikjum í B-deildinni en hann skoraði 37 mörk í 39 leikjum í fjórðu efstu deild Noregs.
Athugasemdir


