Arsenal orðað við þrjá - Zirkzee vill fara frá Man Utd sem vill fá Murillo - Kinsky fer á láni
   fim 12. mars 2026 11:30
Elvar Geir Magnússon
Verratti getur ekki verið með Ítalíu í umspilinu
Mynd: EPA
Ekki er möguleiki á því að Marco Verratti verði með ítalska landsliðinu í umspilinu fyrir HM þar sem hann er að glíma við meiðsli.

Ítalía mætir Norður-Írlandi í undanúrslitum umspilsins 26. mars og ef sigur vinnst mætir liðið síðan annað hvort Bosníu og Hersegóvína eða Wales í úrslitum 31. mars.

Talað var um að Gennaro Gattuso, landsliðsþjálfari Ítalíu, hefði í hyggju að kalla þennan reynslumikla miðjumann inn í hópinn.

Verratti sem er 33 ára spilaði síðast fyrir ítalska landsliðið í úrslitakeppni Þjóðadeildarinnar sumarið 2023. Hann spilar fyrir Al-Duhail í Katar.

Hann hefur hinsvegar ekki spilað síðan 15. janúar vegna meiðsla og verður ekki klár í umspilið.

Gattuso mun því halda sig við Nicolo Barella, Sandro Tonali og Manuel Locatelli sem aðalmenn á miðsvæðinu. Niccolo Pisilli hjá Roma er líklegur til að verða valinn í hópinn.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Athugasemdir
banner
banner