Graham Potter hefur skrifað undir fjögurra ára framlengingu á samningi sínum við sænska fótboltasambandið, til ársins 2030. Hann gerði stuttan samning þegar hann var ráðinn landsliðsþjálfari Svíþjóðar í október en þá var sagt að samningurinn færi eftir því hvort liðið kæmist á HM.
Potter hefur aðeins stýrt tveimur leikjum hjá sænska landsliðinu, 4-1 tapleik gegn Sviss og 1-1 jafntefli við Slóveníu.
Potter hefur aðeins stýrt tveimur leikjum hjá sænska landsliðinu, 4-1 tapleik gegn Sviss og 1-1 jafntefli við Slóveníu.
Svíar munu mæta Úkraínu í umspili um HM sæti 26. mars. Sigurvegarinn leikur úrslitaleik gegn Póllandi eða Albaníu um sæti á HM.
„Ég er gríðarlega ánægður með að framlengja samstarf við Graham Potter, ég er ánægður með leiðtogahæfileika hans og ég hef sterka trú á," segir Niclas Carlnen, framkvæmdastjóri sænska sambandsins.
„Með því að binda hann til langs tíma eyðir það óvissu hjá leikmönnum og þjálfurum og þeir geta horft fram veginn."
Svíar áttu mjög erfiða undankeppni HM þar sem þeir enduðu í neðsta sæti en komust í umspilið í gegnum Þjóðadeildina
Potter var rekinn frá West Ham í lok september en þessi fyrrum stjóri Brighton og Chelsea er í miklum metum í Svíþjóð eftir áhugaverðan árangur hans með Östersund á sínum tíma.
Athugasemdir




