Arsenal orðað við þrjá - Zirkzee vill fara frá Man Utd sem vill fá Murillo - Kinsky fer á láni
   fim 12. mars 2026 23:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Lengjubikarinn: Kári vann Augnablik - Víðir á toppnum
Sigurjón Logi
Sigurjón Logi
Mynd: Kári
Tveir leikir fóru fram í B-deild Lengjubikarsins í kvöld. Kári fékk Augnablik í heimsókn í Akraneshöllina. Máni Berg Ellertsson kom Kára yfir snemma leiks og Sigurjón Logi Bergþórsson bætti öðru markinu við áður en Máni innsiglaði sigurinn undir lok fyrri hálfleiks.

Kári er með sex stig í 3. sæti eftir fjórar umferðir í riðli 1 en Augnablik er í 5. sæti með þrjú stig.

KH og Víðir gerðu jafntefli í riðli 3. Víðir er á toppnum með 8 stig eftir fjórar umferðir. Liðið er stigi á undan Haukum sem eiga leik til góða. KH er í 4. sæti með fjögur stig.

Skallagrímur er í 3. sæti í riðli 2 í C-deild eftir sigur á Létti sem er í 5. sæti með þrjú stig. Vængir Júpíters nældu í sín fyrstu stig þegar liðið vann Stokkseyri í riðli 3. Liðið fór upp fyrir KM í 5. sæti en Stokkseyri er í 3. sæti með 6 stig.

Kári 3 - 0 Augnablik
1-0 Máni Berg Ellertsson ('6 )
2-0 Sigurjón Logi Bergþórsson ('30 )
3-0 Máni Berg Ellertsson ('43 )

KH 2 - 2 Víðir
0-1 Sveinn Andri Sigurpálsson ('47 )
1-1 Luis Carlos Cabrera Solys ('55 , víti)
2-1 Sigfús Kjalar Árnason ('73 )
2-2 Bessi Jóhannsson ('86 )

Léttir 2 - 3 Skallagrímur
1-0 Atli Auttaphon Onsaikaew ('3 )
1-1 Elís Dofri G Gylfason ('4 )
1-2 Elís Dofri G Gylfason ('24 )
1-3 Börkur Bernharð Sigmundsson ('38 )
2-3 Bjarni Leó Sigurðsson ('58 )

Stokkseyri 2 - 3 Vængir Júpiters
1-0 Arilíus Óskarsson ('10 )
1-1 Elfar Ísak Halldórsson ('13 , Own goal)
1-2 Arnar Ragnars Guðjohnsen ('23 )
2-2 Hafþór Berg Ríkarðsson ('47 )
2-3 Fannar Bragason ('90 )
Athugasemdir
banner