JJ Gabriel er nafn sem stuðningsmenn Man Utd ættu að leggja á minnið. Þessi 15 ára gamli sóknarmaður hefur farið hamförum með U18 liði félagsins.
Gabriel skoraði 20 mörk í 22 leikjum á sínu fyrsta tímabili með U18 liðinu en þá var hann aðeins 14 ára gamall.
Gabriel skoraði 20 mörk í 22 leikjum á sínu fyrsta tímabili með U18 liðinu en þá var hann aðeins 14 ára gamall.
Hann hefur æft með aðalliði félagsins en Bryan Mbeumo er mjög hrifinn af honum.
„Hann er mjög góður. Hann æfir oft með okkur og maður sér að hann er með eitthvað sérstakt. Það er allt auðvelt fyrir hann. Hann er mjög rólegur fyrir framan markið, með gott skot og teknískur," sagði Mbeumo.
Athugasemdir

