Þór mun, samkvæmt heimildum Fótbolta.net, taka á móti Fylki í undanúrslitum Lengjubikarsins.
Fylkir lagði ÍBV að velli í lokaleik Fylkis í riðlakeppninni og með því varð ljóst að ÍBV getur ekki náð toppsæti riðilsins. ÍBV á eftir tvo leiki sem þurfti að fresta fyrr í vetur, leiki gegn Þrótti og Breiðabliki.
Þróttur, sem ætti tölfræðilegan möguleika á því að komast upp fyrir Fylki, er hins vegar á leið í æfingaferð og samkvæmt heimildum Fótbolta.net verður leikur ÍBV gegn Þrótti ekki spilaður, því vinnur Fylkir riðilinn og fer í undanúrslitin.

Þar mun liðið mæta Þór á útivelli og verður spilað á næstu dögum. Eftir því sem Fótbolti.net kemst næst verður annað hvort spilað á laugardag, mánudag eða þriðjudag.
Nákvæm dagsetning ætti að vera opinberuð seinna í dag. Sömuleiðis er í dag von á niðurstöðu frá aga- og úrskurðarnefnd varðandi leik Fylkis og FH fyrr í vetur þar sem FH mætti ekki til leiks í seinni hálfleik.
Í hinum undanúrslitaleiknum mætast Stjarnan og KR á laugardag. Úrslitaleikurinn fer svo fram um aðra helgi.
Athugasemdir