Aberdeen hefur ráðið Stephen Robinson sem nýjan aðalþjálfara liðsins. Robinson er 51 árs og er fenginn frá St. Mirren þar sem hann hafði verið í fjögur ár. Robinson gerir samning til sumarsins 2029.
Hann er Norður-Íri sem uppalinn er hjá Tottenham. Hann lék lengst á sínum ferli með Bournemouth og Luton og lék sjö A-landsleiki. Sem stjóri hefur hann verið hjá Oldham, Motherwell, Morecambe, St. Mirren og nú Aberdeen. Hann gerði mjög flotta hluti hjá St. Mirren, kom liðinu í efri hluta deildarinnar síðustu þrjútímabil og vann deildabikarinn.
Aðstoðarmaður Robinson, Brian Kerr, fylgir honum yfir.

Gengi Aberdeen hefur verið undir væntingum í vetur. Liðið er í 9. sæti skosku deildarinnar þegar langt er liðið á mótið eftir að hafa endað í 5. sæti á síðasta tímabili. Aberdeen rak Jimmy Thelin fyrir tveimur mánuðum síðan. Peter Leven tók við til bráðabirgða og liðið vann einungis einn af níu deildarleikjum. Lokaleikur Leven var 3-0 tap gegn Dunfermline í skoska bikarnum.
Robinson bryjar gegn Falkirk á laugardag en Falkirk hefur verið á mikilli siglingu.
U21 landsliðsmaðurinn Kjartan Már Kjartansson (2006) er leikmaður Aberdeen og hefur komið við sögu í sex leikjum í deildinni i vetur. Hann var ónotaðu varamaður gegn Celtic í síðustu viku og spilaði síðast fyrir tæpum mánuði síðan.
Athugasemdir