Arsenal orðað við þrjá - Zirkzee vill fara frá Man Utd sem vill fá Murillo - Kinsky fer á láni
   fim 12. mars 2026 15:59
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
FH sektað um 250 þúsund krónur
Mættu ekki til leiks í seinni hálfleik
FH fær nokkuð háa sekt.
FH fær nokkuð háa sekt.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Svona leit völlurinn út þegar hefja átti seinni hálfleikinn.
Svona leit völlurinn út þegar hefja átti seinni hálfleikinn.
Mynd: Kristján Óli Sigurðsson
Svona leit völlurinn út undir lok fyrri hálfleiks.
Svona leit völlurinn út undir lok fyrri hálfleiks.
Mynd: Livey/Skjáskot
Helgi Mikael Jónasson.
Helgi Mikael Jónasson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Aga- og úrskurðarnefnd KSÍ hefur komist að þeirri niðurstöðu að sekta FH um 250 þúsund krónur.

FH fær sektina fyrir að hafa ekki mætt aftur til leiks í seinni hálfleik gegn Fylki í Lengjubikarnum. Leikurinn fór fram föstudaginn 27. febrúar og komu FH-ingar ekki aftur út á völlinn eftir að flautað var til hálfleiks. Aðstæður í fyrri hálfleik voru nokkuð slæmar og var leikurinn stöðvaður á 33. mínútu vegna úrkomu. Helgi Mikael Jónasson, dómari leiksins, og hans teymi tóku ákvörðun um að best væri að klára fyrri hálfleikinn og endurmeta stöðuna í hálfleik.

Völlurinn var mokaður af starfsmönnum Fylkis og mat dómari leiksins að óhætt væri að halda leik áfram í seinni hálfleik, þar sem ekki væri frost í vellinum. Í greinargerð FH hafnar félagið staðhæfingu dómara um aðstæður og segir óskijanlegt að leiknum hefði ekki verið frestað.

Úrskurðurinn
Úrskurður aga- og úrskurðarnefndar KSÍ v. skýrslu dómara úr leik Fylkis gegn FH 27. febrúar 2026

Á fundi aga- og úrskurðarnefndar KSÍ, þann 10. mars 2026, var tekið fyrir mál FH sem er tilkomið vegna skýrslu dómara frá ofangreindum leik. Í samræmi við reglugerð KSÍ um aga- og úrskurðarmál úrskurðar nefndin m.a. um þau atriði sem koma fram í skýrslu dómara. Í málinu er kveðinn upp svohljóðandi úrskurður:

Samkvæmt skýrslu dómara var leik hætt vegna þess að lið FH mætti ekki til leik í seinni hálfleik. Dómari greinir frá því að hann hafi stöðvað leik á 33. mínútu leiksins vegna úrkomu og þess að aðstæður hafi ekki verið ákjósanlegar til knattspyrnuiðkunar. Dómarateymið kveðst hafa metið best að klára fyrri hálfleik og endurmeta aðstæður í hálfleik. Þjálfurum beggja liða var kynnt að staðan yrði endurmetin í lok hálfleiks og ákvörðun þá tekin um framhald leiksins. Starfsmenn Fylkis mokuðu völlinn og að sögn dómara var tekin ákvörðun um að lengja hálfleikinn til að gera þeim kleift að klára verkið í því skyni að ljúka leiknum. Er dómarateymið flautaði liðin út í síðari hálfleik mætti aðeins Fylkir til leiks. Að sögn dómara var ekki frost í vellinum.

FH skilaði greinargerð í málinu þar sem vísað er til þess að aðstæður hafi ekki verið boðlega til knattspyrnuiðkunar. Félagið kveðst hafa óskað eftir að færa leikinn vegna slæmrar veðurspár en því hafi verið hafnað af Fylki. Staðhæfingum dómara um aðstæður er hafnað af hálfu FH og kveður félagið óskiljanlegt að leiknum hafi ekki verið frestað.

Niðurstaða:

Samkvæmt c-lið gr.13.9 reglugerðar KSÍ um aga- og úrskurðarmál segir:

„Aðildarfélag sem yfirgefur leikvöll í mótmælaskyni eða neitar að halda áfram leik má refsa með brottrekstri úr keppni, stigatapi, leikbanni á öllum leikmönnum liðsins og/eða sekt að lágmarki upphæð kr. 250.000 og allt að kr. 500.000. Sé brot framið í öðrum flokki en í meistaraflokki skal sekt vera að lágmarki kr. 150.000 og að hámarki kr. 250.000.“

Reglugerðir KSÍ gera ráð fyrir því að það sé dómari, eftir atvikum mótanefnd KSÍ, sem taki ákvörðun um frestun leikja vegna veðurs eða annarra óviðráðanlegra ástæðna. Ekkert er fram komið sem að mati aga- og úrskurðarnefndar hnekkir mati dómara eða réttlætir þá háttsemi að mæta ekki til leiks. Með vísan til alls framangreinds telur nefndin að FH hafi brotið gegn c-lið gr. 13.9 með því að neita að halda áfram leik. Samkvæmt orðum ákvæðisins er lágmarkssekt kr. 250.000,-.

Úrskurðarorð:

Knattspyrnudeild FH skal sæta sekt að fjárhæð kr. 250.000,- til KSÍ.

Reykjavík 11. mars 2026
aga- og úrskurðarnefnd KSÍ
Tengdar fréttir:
Athugasemdir
banner