Það eru spennandi leikir á dagskrá í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar og Sambandsdeildarinnar í kvöld, fyrri viðureignir liðanna. Búið er að opinbera byrjunarliðin í þeim leikjum sem verða 17:45.
Varnarmaðurinn Sverrir Ingi Ingason var ekki með í síðasta leik Panathinaikos í grísku deildinni vegna meiðsla en byrjar gegn spænska liðinu Real Betis í Evrópudeildinni. Sverrir er með fyrirliðabandið.
Hákon Arnar Haraldsson hefur byrjað síðustu þrjá leiki Lille í röð og er líka í byrjunarliðinu gegn Aston Villa í sömu keppni.
Logi Tómasson og félagar í Samsunspor fá Rayo Vallecano frá Spáni í heimsókn í Sambandsdeildinni. Logi er í byrjunarliðinu.
Á sama tíma eiga Gísli Gottskálk Þórðarson og félagar í Lech Poznan heimaleik við Shakhtar Donetsk frá Úkraínu. Gísli byrjar á varamannabekknum.

Evrópudeildin
17:45 Panathinaikos - Real Betis
17:45 Stuttgart - Porto
17:45 Bologna - Roma
17:45 Lille - Aston Villa
20:00 Ferencvaros - Braga
20:00 Genk - Freiburg
20:00 Celta Vigo - Lyon
20:00 Nott. Forest - Midtjylland
Sambandsdeildin
17:45 Lech Poznan - Shakhtar Donetsk
17:45 AZ Alkmaar - Sparta Prag
17:45 Samsunspor - Rayo Vallecano
17:45 HNK Rijeka - Strasbourg
20:00 Crystal Palace - AEK Larnaca
20:00 Fiorentina - Rakow
20:00 NK Celje - AEK Aþena
20:00 Sigma Olomouc - Mainz
Athugasemdir