Rashford, Tudor, Glasner, Iraola, Höjlund, Goretzka, Bastoni og fleiri góðir í slúðri dagsins
   lau 21. febrúar 2026 12:42
Brynjar Ingi Erluson
„Það er ekki til í mínum orðaforða“
Mikel Arteta
Mikel Arteta
Mynd: EPA
Enska orðið „bottlers“ sem mætti lauslega þýða sem klúðrarar er orð sem kemur oft í umræðuna í kringum titilbaráttuna á Englandi, en það orð er ekki til í orðaforða Mikel Arteta, stjóra Arsenal.

Á lista Football365 kemur Arsenal fjórum sinnum upp þegar talað er um að klúðra titlinum eða oftast allra liða.

Arsenal hefur aðeins unnið tvo af síðustu sjö deildarleikjum sínum og á Manchester City möguleika á að saxa á forystu Lundúnaliðsins í dag þegar það tekur á móti Newcastle United.

Á tíma var Arsenal komið með þægilega forystu í titilbaráttunni en nú er allt galopið og gæti munurinn verið tvö stig í kvöld.

Arteta var spurður út í umræðuna um Arsenal og að klúðra hlutunum, en hann gaf lítið fyrir þá umræðu.

„Þetta orð er ekki til í mínum orðaforða. Ég sé þetta ekki svona, því ég held að enginn vilji klúðra hlutunum. Ég myndi ekki velja þetta orð en það er bara ég,“ sagði Arteta.
Athugasemdir
banner