Manchester United ætlar að styrkja miðsvæðið í sumar, Real Madrid fylgist grannt með leikmanni Tottenham og Brighton horfir til Þýskalands. Þetta og fleira í þriðjudagsslúðrinu.
Manchester United íhugar að kaupa skoska miðjumanninn Scott McTominay (29) aftur til félagsins fyrir 70 milljónir punda í sumar. Napoli er tilbúið að fá inn pening fyrir leikmanninn tveimur árum eftir að hann kom til félagsins frá Old Trafford. (Fichajes)
Manchester United er hrifið af miðjumanninum Ibrahim Sangare (28) hjá Nottingham Forest. United leitar að miðjumanni til að flla skarð brasilíska landsliðsmannsins Casemiro (34). (GiveMeSport)
Casemiro gæti farið til Bandaríkjanna í sumar þegar samningur hans við United rennur út. Hann er opinn fyrir því að fara í MLS-deildina. (Telegraph)
Real Madrid fylgist grannt með miðverðinum Micky van de Ven (24) en hollenski landsliðsmaðurinn er ekki nálægt samkomulagi við Tottenham um nýjan samning. (TeamTalk)
Brighton vonast til að tryggja sér þýska vængmanninn Said El Mala (19) frá Köln með því að fá einnig eldri bróðir hans, sóknarmanninn Malek (20). (Times)
Liverpool gæti íhugað skiptisamning við Real Madrid. Brasilíski vængmaðurinn Rodrygi (25) kæmi á Anfield og ungverski miðjumaðurinn Dominik Szoboszlai (25) færi til spænsku risanna. (Fichajes)
Franski framherjinn Antoine Griezmann (34) hjá Atletico Madrid er í viðræðum um að ganga í raðir Orlando City í Bandaríkjunum. (Athletic)
Liam Rosenior, stjóri Chelsea, er hikandi við að hleypa enska sóknarmanninum Liam Delap (23) í burtu í sumar. Everton hefur áhuga. (Football Insider)
Crystal Palace mun leyfa austurríska stjóranum Oliver Glasner að klára tímabili. (Football Insider)
Aston Villa, Crystal Palace og Wolves eru meðal félaga sem hafa áhuga á skoska vinstri bakverðinum Andy Robertson (31) sem er líklegur til að yfirgefa Liverpool í sumar. (Caught Offside)
Nottingham Forest gæti verið opið fyrir tilboðum í brasilíska sóknarmanninn Igor Jesus (24) eftir tímabilið. (Football Insider)
Athugasemdir



