Dominik Szoboszlai segir að það hafi áhrif á leikmenn Liverpool að sjá áhorfendur fara snemma og kallar eftir því að stuðningsmenn standi með liðinu.
Það var baulað eftir að Liverpool tapaði enn og aftur niður forystu og fékk á sig 1-1 jöfnunarmarkið gegn Tottenham. Liverpool er í fimmta sæti og í hættu á að missa af Meistaradeildarsæti.
Þá er framundan hjá liðinu leikur gegn Galatasaray í Meistaradeildinni á miðvikudag á Anfield en tyrkneska liðið vann fyrri leikinn 1-0.

Szoboszlai segir leiðinlegt að sjá áhorfendur farna að tínast heim áður og beint eftir að Tottenham jafnaði.
„Ég geld að það hjálpi okkur ekki að eftir 80 mínútur sé fólk farið að halda heim á leið. Það hjálpar okkur ekkert. Standið með okkur. Allir taka eftir þessu, ég skil pirringinn en við þurfum á stuðningsmönnnum að halda. Við þurfum á öllum að halda," segir Szoboszlai.
„Við viljum gleðja okkur og stuðningsmennina, en við þurfum á þeim að halda. Kannski er ekki eins ánægjulegt að horfa á leikina núna eins og það var á síðasta tímabili en við þurfum líka á stuðningi að halda á erfiðum tímum."
Szoboszlai skoraði mark Liverpool gegn Tottenham en eftir leikinn talaði hann um að liðið þyrfti að vakna.
Athugasemdir