Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
   fim 24. desember 2020 07:00
Aksentije Milisic
Man Utd ætlar að framlengja samning Lingard um eitt ár
Mynd: Getty Images
Manchester United ætlar að framlengja samning Jesse Lingard um eitt ár og sjá þannig til þess að leikmaðurinn fari ekki frítt eftir þetta tímabil.

Samningurinn hjá þessum 28 ára gamla leikmanni rennur út eftir tímabilið og því vill félagið ekki missa hann frítt og ætlar að nýta sér klásúlu í samningi hans.

Lingard á yfir 200 leiki fyrir United þar sem hann hefur unnið deildabikarinn, FA bikarinn og Evrópudeildina.

Fjölmörg lið á Englandi og í Evrópu hafa áhuga á Lingard en hann hefur lítið sem ekkert fengið að spila hjá United á þessari leiktíð.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner