„Mér fannst margt jákvætt við okkar frammistöðu í dag. Það gerir það kannski að einhverju leyti enn meira svekkjandi að ná ekki allavega stigi úr þessum leik. Mér fannst þær fá fá góð færi en þær gerðu vel í sínu eina algjörlega opna færi.“ Sagði landsliðskonan Hlín Eiríksdóttir við Fótbolta.net um leik Íslands og Danmerkur sem fram fór í kvöld en Ísland þurfti að sætta sig við afar svekkjandi 1-0 tap eftir virkilega góða frammistöðu heilt yfir.
Lestu um leikinn: Ísland 0 - 1 Danmörk
Framan af leik skapaðist oft hætta þegar íslenska liðið vann boltann hátt á vellinum. Var það hluti af uppleggi liðsins að stíga hátt á danska liðið og setja pressu á öftustu línu?
„Að sjálfsögðu. Við erum búnar að fara mikið yfir það í vikunni að við ætluðum að mæta þeim hærra heldur en við gerðum til dænus gegn Þjóðverjum. Það var klárlega uppleggið að mæta þeim hærra ig mér fannst við gera það mjög vel.“
Eftir 5-0 tapið gegn Þjóðverjum í september talaði Hlín við Fótbolta.net að leikmenn og aðrir sem að landsliðinu standa þyrftu að nýta tímann fram að næsta leik og horfa inn á við og undirbúa sig undir þennan glugga. Nokkuð sem út frá frammistöðu má ætla að hafi tekist ágætlega.
„Ég trúi því og treysti að það sé það sem allir í þessum hóp hafi gert. Svo höfum við nýtt vikuna vel eftir að við komum saman á mánudaginn. Við breyttum aðeins um áherslur og pressuðum, héldum betur í boltann. Margt jákvætt en við erum ennþá bara á vegferð upp á við og þurfum að halda áfram að bæta okkur.“
Sagði Hlín en allt viðtalið við hana má sjá í spilaranum hér að ofan.























