KR hélt uppteknum hætti áfram og spilaði glimmrandi góðan sóknarbolta og unnu FH 4-2 á Meistarvöllum í kvöld.
Þarf nokkuð að laga varnarleikinn þegar sóknarleikurinn er svona góður?
"Jú við þurfum auðvitað að laga hann aðeins. Við erum stundum opnir og þegar hlutirnir eru vel gerðir af anstæðingum okkar þá geta þeir komist í færi. Það er bara eins og það er. Heilt yfir er ég bara ánægður með varnarleikinn í dag."

Lestu um leikinn: KR 4 - 2 FH
Strax á upphafsmínútu leiks klikkaði varnarlínan þegar Úlfur Ágúst Björnsson slapp einn í gegn en Halldór Snær varði hins vegar mjög vel.
En brá Óskari þegar hann sá að Úlfur væri sloppinn í gegn?
"Já það er ekki þægilegt að leikmaður eins og Úlfur Ágúst Björnsson sleppi einn í gegn og það er lítið búið. En það góða við það er að þá er býsna mikið eftir."
Athylgi vakti að fyrir leik gerði veðurspáin ráð fyrir talsverðum vindi og því var ákveðið að færa varamannaskýlin hinum megin við völlinn og beint fyrir aftan áhorfendur.
"Ég veit ekki hvort það hafi verið vegna þess að maður stóð í fyrsta skipti með KR áhorfendur í bakið en það var svona eins og það væri aðeins meiri taugaspenna í þessum leik heldur en fyrstu tveimur heimaleikjum hjá okkur."
En hvað fannst Óskari Arnar dómara beita hagnaðarreglunni rétt á 18. mínútu leiks?
"Ég veit það ekki, ég er ekki með dómarapróf. Jói Kalli var nú ósáttur við flesta aðra dóma í þessum leik"
Ætlar KR að styrkja hópinn fyrir gluggalok á miðvikudaginn eða er Óskar sáttur við núverandi hóp?
"Nei við erum ekki að skoða það og erum sáttir við þennan hóp"
Viðtalið í heild má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.