„Við vorum svolítið off í dag, að öllu leyti, sóknarlega og varnarlega" sagði Jökull Elísabetarson, þjálfari Stjörnunnar, eftir 2-4 tap gegn Val í 4. umferð Bestu Deildarinnar.
Lestu um leikinn: Stjarnan 2 - 4 Valur
,,Það er enginn ánægður í okkar klefa með frammistöðuna."
Hvað var vandamálið í dag?
„Það koma alltaf einn, tveir, þrír leikir yfir season þar sem þú ert bara off og mér fannst þetta vera einn af þeim. Þá þarf að nýta það litla sem þú færð, en á móti þarf líka að standa af sér og vera klár í loka það sem andstæðingurinn hendir í þig. Það bara gekk ekki, þá lítur þetta svolítið út eins og það sé svolítið allt að. Já, þetta var einn af þeim leikjum. En vont tap á heimavelli."
Jökull var ekki sáttur með varnarleikinn í dag.
„Í dag er alveg hægt að horfa í varnarleikinn og telja mörkin, og segja að það þurfi að vinna í varnarleik."
Hvað þarf að vinna í?
„Það eru nokkrir hlutir. En það er samt þannig að þegar liðið er bara off eins og við vorum í dag. Þá er það fyrsta að byrja að stilla það bara rétt og vera klár og þá lagast ansi margt með því bara. En það eru alveg hlutir sem við viljum taka og vinna í án þess að ég er að fara í það hér."
Þið eruð búnir að spila 4. umferðir og búnir að fá á ykkur 11 mörk, áhyggjuefni?
„Já já, auðvitað er það of mikið. Það er erfitt að halda öðru fram. En mér hefur fundist fram að þessum leik, þá eru mörkin sjö og það er kannski tvö þrjú mörk þar sem varnarleikurinn þarf að vera betri. En mér finnst heilt yfir varnarleikurinn hafa verið vaxandi og mjög góður í síðasta leik. En ef þú tekur þetta allt allavega mörkin, augljóst þegar við erum vulnerable þá erum við helvíti berskjaldaðir og þá er okkur refsað. Það er eitthvað sem við þurfum að skoða."
Viðtalið í heild má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.























