Það verða svakalegar framkvæmdir í gangi á Vitality leikvanginum í Bournemouth næsta árið og er hluti stuðningsmanna ósáttur með áform félagsins.
Eigendur Bournemouth hafa ákveðið að næstum því tvöfalda mögulegan áhorfendafjölda á heimaleikjum liðsins þar sem áhorfendageta Vitality leikvangarins verður stækkuð úr 11 þúsund og upp í 20 þúsund.
Framkvæmdirnar hefjast eftir að núverandi keppnistímabili lýkur og hefur félagið gert 600 ársmiðahöfum hjá sér grein fyrir því að sætin þeirra verða færð á meðan á framkvæmdunum stendur á næstu leiktíð.
„Við foreldrar mínir höfum verið ársmiðahafar síðan leikvangurinn opnaði fyrst árið 2001. Hluti af okkar fjölskyldulífi hefur verið á þessum leikvangi. Við erum ekki á móti því að félagið þéni meiri peninga til að verða stærra og betra, vandamálið er tímasetningin og traustið. Það er verið að fara illa með 600 stuðningsmenn til að græða peninga. Þetta er risastórt sjálfsmark hjá félaginu," segir einn ársmiðahafi Bournemouth.
„Þetta hefur ekki bara áhrif á mig heldur líka á föður minn og frænda," segir annar ársmiðahafi. „Við erum með sæti í hólfi 20 og því eru sætin okkar rétt hjá miðjulínunni og við sjáum mjög vel allt sem gerist á vellinum, en það verður ekki þannig á næstu leiktíð. Við erum þakklát fyrir það sem stjórnin hefur gert fyrir félagið, en þegar allt kemur til alls þá ættu svona breytingar ekki að vera gerðar á kostnað traustra og dyggra stuðningsmanna sem hafa verið ársmiðahafar í áraraðir."
Heimavöllur Bournemouth er sá minnsti í úrvalsdeildinni sem stendur en með stækkuninni verður hann sá næstminnsti, eftir heimavelli Brentford. Hann verður þó ekki jafn stór og Turf Moor, heimavöllur Burnley sem virðist ætla að falla aftur niður í Championship deildina í vor.
20.02.2026 18:40
Senesi tekur ákvörðun í sumar - Iraola eftirsóttur
Athugasemdir





