Delap, Mainoo, Bastoni, Atubolu, Vicario, Dewsbury-Hall, Guimaraes og fleiri góðir í slúðri dagsins
   lau 21. mars 2026 11:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Kom til Íslands til að fjalla um leið Heimis að írska starfinu
Heimir glaður í Vestmannaeyjum.
Heimir glaður í Vestmannaeyjum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Írski fjölmiðillinn Independent Sport gaf nýverið út heimildarmynd þar sem fjallað er um leið Heimis Hallgrímssonar að landsliðsþjálfarastarfi Írlands.

Daniel McDonnell, fréttamaður miðilsins, ferðaðist til Íslands og talaði þar við fólk sem tengist Heimi. Hann fór til Vestmannaeyja þar sem Heimir ólst upp og tók sín fyrstu skref í fótboltanum og sem þjálfari.

„Í gegnum samtöl við bræður Heimis, besta vin hans frá barnæsku, fyrrverandi matreiðslumann sem nú er orðinn hluti af fjölskyldunni og heimamenn sem fylgdust með honum vaxa úr ungum leikmanni í hugulsaman þjálfara, kemur skýr mynd fram: Samfélag, auðmýkt og umhyggja eru grunnurinn að þjálfunarheimspeki Heimis," segir í umfjöllun miðilsins um myndina.

„Þetta er mynd um þjálfara sem er ekki mótaður af egóinu, heldur af fólkinu og staðnum sem bjuggu hann til."

Heimir skrifaði nýverið undir nýjan samning við írska fótboltasambandið sem gildir til ársins 2028. Eyjamaðurinn hefur gert vel með írska landsliðið, liðið á möguleika á sæti á HM en framundan er umspilsleikur gegn Tékkum. Ef sá leikur vinnst fer Írland í úrslitaleik um sæti á HM gegn Danmörku eða Norður-Makedóníu.

Hér fyrir neðan er hægt að horfa á myndina.


Athugasemdir
banner