Preston 3 - 1 Stoke City
0-1 Sorba Thomas ('4 )
1-1 Alfie Devine ('15 )
2-1 Milutin Osmajic ('57 )
3-1 Alfie Devine ('60 )
0-1 Sorba Thomas ('4 )
1-1 Alfie Devine ('15 )
2-1 Milutin Osmajic ('57 )
3-1 Alfie Devine ('60 )
Preston North End tók á móti Stoke City í eina leik kvöldsins í Championship deildinni, næstefstu deild enska boltans, og náðu gestirnir forystunni snemma leiks.
Sorba Thomas skoraði flott mark með laglegri afgreiðslu eftir fyrirgjöf frá Junior Tchamadeu en heimamenn í Preston voru sterkari aðilinn eftir það. Alfie Devine, lánsmaður frá Tottenham, jafnaði metin með frábæru einstaklingsframtaki eftir skyndisókn í kjölfarið af löngu innkasti Stoke sem misheppnaðist.
Preston fékk færi til að taka forystuna en staðan hélst jöfn allt þar til í síðari hálfleik, þegar Milutin Osmajic skoraði með skalla eftir snyrtilega fyrirgjöf frá Lewis Dobbin, lánsmanni frá Aston Villa.
Osmajic skoraði á 57. mínútu og lagði svo upp fyrir Devine skömmu síðar til að tvöfalda forystuna eftir aðra skyndisókn.
Stoke tókst ekki að minnka muninn svo lokatölur urðu 3-1 fyrir Preston, sem var sterkari aðilinn stærsta hluta leiksins og verðskuldaði sigurinn.
Preston klifrar uppfyrir Stoke með þessum sigri. Liðin eru bæði um miðja deild, átta stigum frá umspilsbaráttunni.
Athugasemdir


