Vítor Pereira þjálfari Nottingham Forest var himinlifandi eftir að liðið komst áfram í næstu umferð í útsláttarkeppni Evrópudeildarinnar í dag.
Forest heimsótti FC Midtjylland til Danmerkur eftir óvænt tap á heimavelli í fyrri leik liðanna. Einvígið fór alla leið í vítaspyrnukeppni og höfðu gestirnir frá Nottingham betur þar sem heimamenn klúðruðu öllum spyrnunum sínum.
„Ég er mjög ánægður með þetta, við sönnuðum í dag að við erum samkeppnishæfir á þessu gæðastigi. Við vorum stórkostlegir í fyrri hálfleik og fengum góð tækifæri til að skora fleiri mörk í seinni hálfleik en tókst ekki. Við gerðum vel að sækja þennan sigur," sagði Pereira sem gerði margar breytingar á byrjunarliði Forest á milli leikja enda er liðið í erfiðri fallbaráttu í ensku úrvalsdeildinni.
„Ég gerði þessar breytingar útaf því að við eigum svo mikilvægan leik við Spurs eftir þrjá daga. Núna þurfum við að einbeita okkur að komandi helgi, það eru mikilvægir leikir framundan. Þetta er mikilvægur sigur fyrir sjálfstraust leikmanna. Ég er með mjög góðan leikmannahóp hérna, þeir sýndu mikinn liðsanda og sterkan persónuleika í dag.
„Ég hef engar efasemdir um að við höfum gæðin til að ná markmiðunum okkar."
Ryan Yates fyrirliði Forest skoraði laglegt mark í sigrinum með skoti utan vítateigs.
„Við erum mjög ánægðir. Það er erfitt að fara í vítaspyrnukeppni en strákarnir stóðu sig vel. Ferðalaginu er ekki lokið, draumurinn er enn á lífi. Við viljum þakka stuðningsmönnunum sem gerðu sér ferðalag alla leið hingað sérstaklega fyrir, stuðningurinn hjálpaði okkur mikið í dag.
„Við stóðum okkur mjög vel í dag þrátt fyrir mikið af breytingum á byrjunarliðinu. Það sýnir hversu gott fótboltalið við erum, leikmannahópurinn er frábær og menn eru að berjast um sæti í byrjunarliðinu. Við erum þreyttir og þurfum að safna kröftum til að keppa við Spurs á sunnudaginn."
Forest mætir Porto eða Stuttgart í 8-liða úrslitum.
Athugasemdir


