Enrique efstur á lista Man Utd - Hættir Pep hjá City í sumar? - Man Utd ætlar ekki að lána Rashford aftur til Barca
   lau 21. mars 2026 06:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Þróttur sigraði KFA á Spáni - 2009 módel á skotskónum
Jakob Ocares
Jakob Ocares
Mynd: Þróttur
Þróttur 3 - 0 KFA
Mörk Þróttar: Vilhjálmur Kaldal Sigurðsson, Jakob Ocares Kristjánsson og Aron Snær Ingason

Það fór fram æfingaleikur milli íslenskra liða á Campo Amor á Spáni í gær. Þróttur Reykjavík og KFA eru þar í æfingaferð og spiluðu æfingaleik.

Lengjudeildarlið Þróttar vann 3-0 sigur og voru það þeir Vilhjálmur Kaldal, Jakob Ocares og Aron Snær sem skoruðu mörkin. Jakob Ocares þykir mjög efnilegur, hann er fæddur árið 2009 og hefur verið í íslensku unglingalandsliðunum. KFA verður í 2. deild í sumar.

KFA á leik næsta laugardag í bikarnum gegn Sindra og sama dag á Þróttur að mæta sigurvegaranum úr leik Víkings Ó. og Árborgar.

Leikirnir eru liðir í 2. umferð forkeppninnar í Mjólkurbikarnum.

Veistu úrslit úr æfingaleikjum?
Ef þú hefur upplýsingar um úrslit æfingaleikja og markaskorara endilega sendu okkur þá tölvupóst á [email protected] eða settu úrslitin á Twitter og merktu #fotboltinet
Athugasemdir
banner
banner