Albert Guðmundsson kom inn af bekknum í uppbótartíma og lagði upp skömmu síðar þegar Fiorentina lagði Raków að velli í 16-liða úrslitum Sambandsdeildarinnar.
Fiorentina vann fyrri leikinn naumlega á heimavelli og innsiglaði sigurinn í dag. Fiorentina var sterkara liðið þrátt fyrir að hvíla ýmsa lykilmenn og mætir annað hvort Crystal Palace eða AEK Larnaca í 8-liða úrslitum.
Viðureign Palace gegn Larnaca er í framlengingu þessa stundina eftir 1-1 jafntefli. Ismaila Sarr náði forystunni fyrir Palace í fyrri hálfleik og kom boltanum svo aftur í netið en var dæmdur rangstæður.
Palace sýndi mikla yfirburði en Enric Saborit jafnaði metin í síðari hálfleik og fékk svo seinna gula spjaldið sitt tíu mínútum síðar.
Tíu leikmenn AEK náðu að halda út í venjulegum leiktíma svo niðurstaðan varð 1-1 eftir óvænt jafntefli í fyrri leiknum á Selhurst Park. Leikurinn er því í framlengingu.
Í öðrum leikjum dagsins tryggðu Mainz og AEK frá Aþenu sér sæti í 8-liða úrslitunum. Mainz lagði Sigma Olomuc frá Tékklandi að velli á meðan grísku risarnir í AEK töpuðu heimaleiknum gegn NK Celje óvænt eftir að hafa unnið útileikinn stórt.
Rakow 1 - 2 Fiorentina (2-4 samanlagt)
1-0 Karol Struski ('46 )
1-1 Cher Ndour ('69 )
1-2 Marin Pongracic ('97 )
AEK Larnaca 1 - 1 Crystal Palace (1-1 samanlagt)
0-1 Ismaila Sarr ('14 )
1-1 Enric Saborit ('63 )
Rautt spjald: Enric Saborit, AEK Larnaca ('73)
Mainz 2 - 0 Olomouc (2-0 samanlagt)
1-0 Stefan Posch ('46 )
2-0 Armindo Sieb ('82 )
Rautt spjald: Peter Barath, Olomouc ('76)
AEK 0 - 2 Celje (4-2 samanlagt)
0-1 Nikita Iosifov ('13 )
0-2 Rudi Pozeg Vancas ('42 )
Athugasemdir




