Enrique efstur á lista Man Utd - Hættir Pep hjá City í sumar? - Man Utd ætlar ekki að lána Rashford aftur til Barca
   fös 20. mars 2026 11:05
Elvar Geir Magnússon
England bara einu jafntefli frá því að innsigla fimmta Meistaradeildarsætið
Liverpool er í fimmta sæti ensku úrvalsdeildarinnar.
Liverpool er í fimmta sæti ensku úrvalsdeildarinnar.
Mynd: EPA
England verður með fimm Meistaradeildarsæti á næsta tímabili, það er hægt að fullyrða það. Eftir úrslit vikunnar er England bara einu jafntefli frá því að innsigla sætið.

UEFA gefur þeim tveimur þjóðum sem hafa staðið sig best á tímabilinu í Evrópukeppnum aukasæti. Þetta fyrirkomulag tók gildi á síðasta tímabili þegar Meistaradeildin var stækkuð úr 32 í 36 lið.

England fékk líka fimm sæti í fyrra og Newcastle komst því í Meistaradeildina.

Aston Villa, Nottingham Forest og Crystal Palace komust öll áfram í Evrópudeildinni og Sambandsdeildinni í gær. England er þegar komin með fleiri stig samtals en Spánn fékk í fyrra þegar La Liga fékk aukasæti með því að vera í öðru sæti.
Mynd: BBC

Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 31 21 7 3 61 22 +39 70
2 Man City 30 18 7 5 60 28 +32 61
3 Man Utd 30 15 9 6 54 41 +13 54
4 Aston Villa 30 15 6 9 40 37 +3 51
5 Liverpool 30 14 7 9 49 40 +9 49
6 Chelsea 30 13 9 8 53 35 +18 48
7 Brentford 30 13 6 11 46 42 +4 45
8 Everton 30 12 7 11 34 35 -1 43
9 Newcastle 30 12 6 12 43 43 0 42
10 Bournemouth 30 9 14 7 44 46 -2 41
11 Fulham 30 12 5 13 40 43 -3 41
12 Brighton 30 10 10 10 39 36 +3 40
13 Sunderland 30 10 10 10 30 35 -5 40
14 Crystal Palace 30 10 9 11 33 35 -2 39
15 Leeds 30 7 11 12 37 48 -11 32
16 Tottenham 30 7 9 14 40 47 -7 30
17 Nott. Forest 30 7 8 15 28 43 -15 29
18 West Ham 30 7 8 15 36 55 -19 29
19 Burnley 30 4 8 18 32 58 -26 20
20 Wolves 31 3 8 20 24 54 -30 17
Athugasemdir
banner
banner