Börsungar vilja Rashford aftur á láni - Ndidi gæti farið til Man Utd - Hár verðmiði á Tonali
   fim 19. mars 2026 22:10
Ívan Guðjón Baldursson
Lengjubikar kvenna: Topplið KR lagði botnlið Selfoss
Kvenaboltinn
Mynd: KR
KR 2 - 0 Selfoss
1-0 Rakel Grétarsdóttir ('62)
2-0 Brynja Líf Jónsdóttir, sjálfsmark ('72)

KR og Selfoss áttust við í eina leik kvöldsins í B-deild Lengjubikars kvenna og var staðan markalaus eftir fyrri hálfleik.

Heimakonur í liði KR skópu sigur með tveimur mörkum í seinni hálfleik. Fyrst skoraði Rakel Grétarsdóttir á 62. mínútu og innsiglaði KR sigurinn tíu mínútum síðar þegar Brynja Líf Jónsdóttir gerði sjálfsmark.

Meira var ekki skorað svo lokatölur urðu 2-0. KR er í toppsæti deildarinnar með 10 stig eftir fjórar umferðir á meðan Selfoss situr eftir í botnsætinu án stiga.
Athugasemdir
banner