Delap, Mainoo, Bastoni, Atubolu, Vicario, Dewsbury-Hall, Guimaraes og fleiri góðir í slúðri dagsins
   lau 21. mars 2026 10:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Tryggur samstarfsfélagi Mourinho fallinn frá
Jose Mourinho.
Jose Mourinho.
Mynd: EPA
Það bárust sorgleg tíðindi í vikunni því Silvino Louro, fyrrum markvarðarþjálfari Chelsea og Manchester United, er látinn. Hann var 67 ára gamall.

Louro vann lengi með Jose Mourinho og voru þeir mjög nánir. Mourinho minntist Louro á samfélagsmiðlum.

„Núna græt ég, en ég mun líka geta hlegið mikið, talað um þig og munað eftir hverju augnabliki," skrifar Mourinho.

„Í Mourinho fjölskyldunni ertu elskaður. Ég mun halda áfram að hlusta á þig fyrir hvern einasta leik. 'Bróðir, þetta verður allt í lagi'."

Bæði Manchester United og Chelsea hafa minnst Louro sem var greinilega vel liðinn hvert sem hann fór.

Hér fyrir neðan má sjá færsluna hjá Mourinho sem margir af hans fyrrum leikmönnum hafa sett ummæli við.



Athugasemdir
banner
banner