Enrique efstur á lista Man Utd - Hættir Pep hjá City í sumar? - Man Utd ætlar ekki að lána Rashford aftur til Barca
   fös 20. mars 2026 15:00
Kári Snorrason
Einn erfiðasti leikur sem Gylfi hefur spilað - „Mikil óvissa um hvað myndi gerast“
Gylfi og Helgi Guðjónsson í Mexíkó.
Gylfi og Helgi Guðjónsson í Mexíkó.
Mynd: KSÍ
Gylfi Þór Sigurðsson segir æfingaleik Íslands gegn Mexíkó í síðasta mánuði vera einn erfiðasta leik sem hann hefur spilað á ferlinum. Leikið var á Corregidora leikvanginum í Mexíkó en völlurinn er í rúmlega 1800 metra hæð.

Fótbolti.net ræddi við Gylfa um Mexíkóleikinn á kynningarfundi Víkings í Fossvogi í gær þar sem félagið kynnti nýja treyju og nýjan samstarfsaðila.

„Já, þetta var mjög erfitt út af þessari hæð sem við vorum í. Það var gríðarlega erfitt að anda. Maður var ekkert þreyttur í líkamanum eftir leikinn en meðan á leik stóð hafðiru ekki orku í að hlaupa mikið, greinilega út af hæðinni. Mexíkóarnir sögðust vera vanir þessari ef ekki meiri hæð. Þannig að þetta gerði manni mjög erfitt fyrir að hlaupa í þrjár, fjórar mínútur sem hefur venjulega ekki verið vandamál.“

Miklar óeirðir voru víða í Mexíkó þegar landsliðið var úti eftir að eiturlyfjabaróninn Nemesio Oseguera Cervantes féll í bardögum við mexíkóska herinn. Gylfi var spurður út í hvernig stemningin hafi verið.

„Maður fann fyrir mjög mikilli öryggisgæslu. Sérstaklega á leikdag. Það var náttúrulega mikil óvissa, þó að þessir atburðir gerðust ekki á því svæði sem við vorum á. En það var mikil óvissa hvað myndi gerast á næstu dögum. Ég held að bæði KSÍ, mexíkóska fótboltasambandið og allir sem stóðu í kringum þetta hafi staðið sig vel,“ sagði Gylfi að lokum.
Gylfi vonast til að vera mættur til að vera í landsliðinu - „Vonandi sem lengst“
Athugasemdir
banner