Börsungar vilja Rashford aftur á láni - Ndidi gæti farið til Man Utd - Hár verðmiði á Tonali
banner
   fim 19. mars 2026 11:00
Elvar Geir Magnússon
Ítalía bíður eftir niðurstöðu úr myndatöku Tonali
Nick Wolttemade og Sandro Tonali á æfingu á þriðjudaginn.
Nick Wolttemade og Sandro Tonali á æfingu á þriðjudaginn.
Mynd: EPA
Ítalski miðjumaðurinn Sandro Tonali varð fyrir vöðvameiðslum þegar Newcastle tapaði fyrir Barcelona í Meistaradeildinni í gær.

Hann fór af velli í seinni hálfleik og beðið er eftir niðurstöðu úr myndatöku.

Eddie Howe sagði eftir leik að Tonali væri tæpur fyrir grannaslaginn gegn Sunderland um helgina en ítalska landsliðið hefur enn meiri áhyggjur.

Ítalía er að fara í umspil um sæti á HM. Liðið mætir Norður-Írlandi þann 26. mars og sigurliðið leikur úrslitaleik um HM sæti við Wales eða Bosníu og Hersegóvínu.

Tonali er byrjunarliðsmaður í ítalska landsliðinu og þjálfarinn Gennaro Gattuso krossleggur nú fingur.
Athugasemdir
banner
banner