Delap, Mainoo, Bastoni, Atubolu, Vicario, Dewsbury-Hall, Guimaraes og fleiri góðir í slúðri dagsins
   lau 21. mars 2026 08:30
Ívan Guðjón Baldursson
Raya var næstum farinn til Bayern
Raya er aðeins búinn að fá 25 mörk á sig í 40 leikjum það sem af er tímabils.
Raya er aðeins búinn að fá 25 mörk á sig í 40 leikjum það sem af er tímabils.
Mynd: EPA
David Raya er einn af allra bestu markvörðum ensku úrvalsdeildarinnar um þessar mundir. Hann hefur staðið sig frábærlega á milli stanga Arsenal frá því að félagið keypti hann úr röðum Brentford sumarið 2023.

Raya er mjög ánægður með lífið hjá Arsenal og gaf áhugavert viðtal við Sky Sports á dögunum þar sem hann greindi frá því að hann var nálægt því að ganga til liðs við Þýskalandsmeistara FC Bayern áður en hann skipti til Arsenal.

„Ég var mjög nálægt því að fara til Bayern áður en ég skrifaði undir hjá Arsenal. Ég var byrjaður að pakka í töskur en blessunarlega varð ekkert úr félagaskiptunum, svo Arsenal lagði fram tilboð.

„Ég þurfti ekki að hugsa mig tvisvar um þegar ég heyrði af áhuga frá Arsenal. Þetta er fullkomið verkefni sem hentar mér einstaklega vel, sérstaklega leikstíll liðsins og hvernig markvörðurinn er partur af spilinu. Mér fannst þetta vera rétta skrefið fyrir ferilinn minn."


Raya er 30 ára gamall og með rétt rúmlega tvö ár eftir af samningi við Arsenal.
Athugasemdir
banner
banner