Bradley Barcola, vængmaður Paris Saint-Germain, verður frá í næstu vikurnar eftir að hafa meiðst á hægri ökkla gegn Chelsea í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.
Barcola varð fyrir liðbandameiðslum í 3-0 útisigri PSG og fór af velli á 59. mínútu.
Þessi líflegi kantmaður skoraði fyrsta mark leiksins en PSG vann samtals 8-2 sigur. Hann er kominn með tólf mörk á tímabilinu.
Líklegt er að Barcola missi af einvíginu gegn Liverpool í 8-liða úrslitum í næsta mánuði. Hann verðir ekki með franska landsliðinu í komandi vináttulandsleikjum gegn Brasilíu og Kólumbíu.
Athugasemdir




